HI ráðgjöf, sérfræðingar í hönnun stjórnskipulags, gæða- og áhættustjórnun:
Hrönn Ingólfsdóttir, stjórnunarráðgjafi hefur sérhæft sig í hönnun stjórnskipulags, ferlastjórnun, samhæfðri staðlastjórnun og rekstraráhættu í Mega. HI ráðgjöf hefur hannað nálgun sem hentar íslenskum fyrirtækjum og er með í boði tilbúna lausn.
Samuel Webb sérfræðingur í vefhönnun og rafrænum eyðublöðum. HI ráðgjöf þjónar öllum kynningum og tilboðum fyrir Mega á Íslandi.
Miracle, sérfræðingar í upplýsingatækni
Gunnar Bjarnason, framkvæmdastjóri stýrir verkefnum Mega á Íslandi hjá Miracle sérfræðingum. Miracle hefur sérhæft sig í hönnun tækniumhverfis og hönnun skýrslna úr Mega kerfinu, Miracle þjónar öll tæknimál fyrir Mega á Íslandi.
Hvað er Mega?
Mega er stjórnskipulagskerfi sem heldur utanum allt stjórnskipulag, verkferla, lög og reglur, staðlastjórnun, áhættustjórnun og upplýsingatæknimál. Það sem gerir Mega að mega vöru er að öll atriði stjórnskipulagsins eru tengt hvort öðru og eina sem þarf er að óska eftir skýrslu úr kerfinu og þú hefur stöðumat á sem dæmi : hvaða ferill er tengdur hvaða hugbúnaði, eru áhættur tengdar við ferilinn, hugbúnaðinn eða eru kröfur tengdar við viðkomandi atriði. Hvað viltu sjá í skýrslu og þú færð þær upplýsingar svo framalega sem viðkomandi upplýsingar eru settar inn í kerfið. Einnig nýtist kerfið fyrir alla kröfu og staðlastjórnun og framkallar vef sem nýtist sem gæðavefur fyrir alla starfsmenn fyrirtækisins. Fyrirtækin versla einingar í Mega eftir þörfum og geta unnið verkefnið í áföngum, þegar ný eining er keypt tekur einungis 1 mínútu að sameinga þær einingar sem eru í notkun.
Mega gagnast öllum deildum fyrirtækja svo sem framlínu, bakvinnslu, tölvudeildum, regluvörslu og áhættustýringu. Framlína og bakvinnsla fá góða yfirsýn yfir verkferla auk þess sem hægt er að tengja handbækur og leiðbeiningar við ferlana. Með því að tengja ferlana við upplýsingakerfin og þaðan við netþjóna og netbúnað og hvern þann búnað sem finnst í tölvusölum fyrirtækja verður m.a. auðveldara að rekja villur sem upp koma. Einnig gefur Mega afbragðsupplýsingar um rekstraráhættu sem skapast við uppfærslu kerfa með því að sýna samtengingu kerfa og þar af leiðandi hvaða hlutir upplýsingakerfa og verkferla verða fyrir áhrifum af uppfærslum og breytingum.
Mega á Íslandi hefur náð fínum árangri með innleiðingu á stjórnskipulagskerfi. Stjórnskipulagskerfið inniheldur m.a. gæða- og áhættustjórnunarkerfi með vef sem birtingarmynd fyrir endanotendur aðgengilegt öllum starfsmönnum á innra neti.
Lögð er áhersla á að samhæfa öll stjórnkerfi í eitt og þeir stjórnendur sem koma að viðkomandi kerfi eru m.a. áhættustjórar, öryggisstjórar, verkefnastjórar,staðlastjórar, mannauðsstjóri, innkaupastjóri, fjármálastjóri, upplýsingatæknistjóri og framkvæmdastjórar.
The Forrester Wave™: Enterprise
Architecture Management Suites,
Q2 2011